Allsherjar svívirðingar og læti
annað fólk
06.09.2006 21:24:40 / drhilmar

Gestapistill í boði

Gott fólk, vegna mikillar góðmennsku hef ég ákveðið að leyfa heppnum og luknum lesanda að skrifa gestapistil á þessa ágætu síðu, það eina sem þarf að gera er að giska á lykilorðið og mun ég meira að segja gefa vísbendingu.

notendanafn er drhilmar

Lykilorðið tengist hins vegar sjónvarpsþætti/bíómynd og dýri sem lifir í nær öllum heimsálfum.

Á öðrum nótum: það er einkennilegt að tónlistarsagan hafi ekki sett samasem merki á milli stanley/simmons og lennon/mccartney.  Ekki er ég að reyna að gera lítið úr bítlabræðrum heldur er ég upphefja þá Kiss félaga sem hafa verið einstaklega afkastamiklir í gegnum og samið ódauðlega klassískera.Lög eins og sure know something, going blind, lumster in blumster og fleiri stórglæsileg.

Annars hippar eru ljótir, hommalegirog ég hata þá meira en kartöflur og ís saman.

Minni svo á skemmtilegan teljara sem ég hef sett upp á síðunni.


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 22:07:50 / drhilmar

raf-x djamm

við í raf-x fórum á smá skrall síðasta föstudag og hér eru nokkrar myndir

vési mætir í sannkölluðum travoltastíl í bílinn hjá manninum sem svindlaði í idol

maðurinn sem reyndi að myrða mig
vésteinn enn edrú og ekki farinn að lýta við Alla

sá myndarlegasti

matmaður mikill

Gísli fagnar fyrstu keilunni sem fór niður

Vésteinn drekkur í sig kjark

Vési reynir við gísla

rómantík
mikil spenna er að myndast hjá þeim vinunum

og svo enduðu þeir í góðum sleik

Ég þakka samstarfsfélögum mínum fyrir kvöldið og vonandi verður meira á næstunni, læt svo vita hvernig staðan er hjá vésa og alla innan skamms


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 22:38:27 / drhilmar

Til hamingju Vésen

Fyrir 25 árum ákvað Guð að sanna það að hann væri með húmor og því ákvað hann að búa til blöndu af Hans klaufa og klaufastrumpi.  Þennan unga dreng sendi hann í Garðabæinn og hefur síðan þá varla hætt að hlægja.

Til hamingju með daginn litla rjómabolla.


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 22:50:30 / drhilmar

Hvað má kaupa fyrir rúman 300.000 kall

Mig langar að benda lesendum á hluti sem má kaupa fyrir 300.000 kr ef þeir skulda ekki álíka upphæðir í lögreglusektir.

1.Kollur af bjór, svona 1200 kollur á hansen ef allt er keypt á tilboði.

2.allar hall&oates plötunar og þá væntanlega svona 1000 stykki af hvorri plötu

3.það má fara svona 8-9 sinnum til London fyrir þennan pening

4.nizzan sunny 96

5.1200 bita á KFC

6.20-30 stykki af volvo 88 , fer eftir hvað er á bensíni á bílunum

7.2000 hálfs líters kók úr sjoppu

8.428 hamborgaratilboð á ,,sæl og ví"

9.fitusog á eða eftir kollu-rnar

10.miða á hm á svörtum markaði á þess vegna úrslitaleik.


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 22:37:03 / drhilmar

Sverrir afmæli

Þar sem hinn ágæti drengur Sverrir Þór Sævarsson á afmæli í dag hef ég ákveðið að up-pfæra ævisöguna hans sem ég skrifaði fyrir 2 árum

1.árs, eftir að hafa dritað kóka pöffsi í brækunar frá fæðingu situr hann í fyrsta skipti á koppi en hvolfir svo innihaldinu yfir höfuðið á sér þegar hann hefur lokið sér af, ekki vinsælt uppátæki það í rauðu blokkinni

2 -5 ára, fátt markvert gerist nema að hann uppgötvar Boni M og gerir alla í rauðu blokkinni brjálaða þegar hann spilar stanslaust rasputin og önnur skemmtileg lög hátt og mikið.

6.ára, fer í víðistaðaskóla og hittir mig í fyrsta skipti, lærir fystur allra stafinn M og er fljótastur með fyrstu síðuna í reikningsbókinni og fær stjörnu að launum

7-10 ára, hann heldur áfram í víðastaðaskóla undir harðri stjórn Önnu Krístínar, hún kemur þó vel fram við hann og stýjar hann ekki í sundur frá sínum sessunaut eins og hún gerði við mig og belginn feita. Hann verður fyrir sjaldgæfu fyrirbæri sem kallast þýskusköddun en þetta er sjúkdómur sem fær menn til að fíla þýska landsliðið í knattspyrnu og þýsku deildarkeppnina, þessi sjúkdómur færðist mikið í aukanna með árunum en hefur samt aðeins dofnað í dag.

11- 13 ára, fær sitt fyrsta trommusett og nú verður fjandinn laus í rauðu blokkinni, mamma hans Orra kúkar ítrekað í sig af bræði þegar hann trommar sem óður maður og sjaldan er ástandið verra en þegar Jóhann mætir á svæðið. Hann gengur einnig til liðs við hljómsveitina Taktlausir sem átti þó ekki eftir að verða lengi starfandi í þeirri mynd sem hún byrjaði því allmargar manna og nafnabreytingar voru gerðar.

14-15 ára, hann lýkur víðastaðaskóla með sóma, lítið annað markvert gerðist á þessum tíma.

16.ára byrjar nám í flensborg og fer fyrst fyrir alvöru að stunda það að fara á fund með bakkusi, ælir á sig í partýi á sléttahrauninu þar sem ég bjó

17.ára, fær bílpróf og klessir svo á stuttu seinna.

18.ára, kýs alþýðubandalagið í bæjarstjórnarkosningum, fær bágt fyrir og sérstaklega frá fólkinu í rauðu blokkinni sem í mótmælaskyni lemur kústi í svalagluggann eitt sinn þegar hann hélt þar gleðskap

19.ára kýs guðrúnu Agnarsdóttur í forsetakosningum, fer í meðferð við þýskuáráttunni eftir EM 96 sem þjóðverjar unnu á leiðinlegan hátt.

20 ára. hefur störf í álverinu góða og myndar eitt öflugasta skauthreinsipar sem sögur fara af, þótti einnig liðtækur í brúarliftingu og á deigluverkstæði.

21 - 24, reynir að gera feril sem dósalemjari í Funkmaster 2000, þeir selja 249 eintök fyrir jólin 98.hefur einnig störf hjá Landssímanum.

25.ára, er loks hrakinn burt úr rauðu blokkinni eftir áralangt haturssamband við nágrannanna.

26.ára,vinnur ser inn playstation 2 tölvu og er alltaf fullur eins og sem oft áður, tekur taxa heim með strákunum eftir djamm

27 ára, lítið búið að gerast enn, ráðlegg honum að fara varlega á þessu ári þar sem það reynist oft erfitt stórmennum

Ekki lést nú Sverrir 27 ára eins og mörg önnur stórmenni en hér kemur framhaldið.

27 ára framhald, Sverrir átti miklum vændræðum á þessu ári, til að reyna að krækja í gellur þá keypti hann sér Imprezzu með hjálp okurlánara, margar svefnlausar nætur átti hann þegar hann lá andvaka og var að spá í hvernig hann ætti að fjármagna næstu afborgun.  Hins vegar skilaði bíllinn tilætluðum árangri og hafði hann nóg að gera að afgreiða allar þær skvísur sem vildu komast í imprezzuna. 

Títtnefnd imprezza kom svo okkur vinunum vel þegar við 5 vinirnir og félagarnir skunduðum til Akureyrar til að verða vitni að titli.

28 ára - mjög óvænt náði Sverrir að vinna sig út úr fjárhagsvændræðunum þegar sala á funkmaster disknum góða tók risakipp eftir að orðrómur um að Harrison Ford hefði verið leynigestur á Vegamótum þetta kvöld sem tónleikarnir voru teknir upp.

Sverrir kynntist þýskri snót nokkuð óvænt þegar hann rauk út úr bílnum sínum til við kerið þar sem hann var í spreng, núverandi sambýliskona hans var einmitt líka við kerið ásamt fullt af öðrum þýskum túristum og heillaðist hún strax af limaburð hans og nýbónaðri imprezzunni.

Þar sem Sverrir hefur alltaf haft mikið álit á mér ákvað hann að best væri að flytja í Kópavoginn en þar bý ég sem stendur tímabundið.

Meira markvert hefur ekki drifið á daga Sverris.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 12:29:09 / drhilmar

dísa ritar

Ævisaga Hilmars.

 Árið 1977 varð móðir Hilmars ólétt í janúar og Hilmar er lét ekki sjá sig fyrr en 10 mánuðum síðar . Hann var afar krumpaður, hægt er að nálgast mynd heima hjá Dísu þar sem Hilmar er rauður, slímugur og í öllu sínu veldi. Hilmar fékk nafið eftir afa sínum sem þá var kominn með hrukkur og Hilmar var svo hrukkað barn að hann fékk þetta nafn í höfðuðið á afa sínum. Þegar að Hilmar litli var 2ja ára var talið að hann væri vitstola, seinþroska og jafnvel bara þroskaheftur. Ekki var talið að barnið væri svona heimskt vegna þess að hann er kominn af aðal fjölskyldu. Hann var settur í sérdeild Víðivalla og fengu þeir krakkar að leika sér með naghringi og mjúga bolta meðan hinir fengu að mála og lita og sparka með alvöru boltum. Hilmar undi sér ekki vel með þessum börnum, hann labbaði líka alltaf á þau og var hann sendur til þroskalæknirs. Þegar að barnið hafði gegnið læknanna á milli kom það í ljós að hann væri sjónskertur og fékk flöskubotna á umgjörðina. Þegar að Hilmar gat loksins eitthvað séð fékk hann ofur áhuga á fuglum, hann fékk bakveiki af því að hann var alltaf að horfa til himins ; þar af kemur skýring hvers vegna hann er með járnsúlu í bakinu og syngur “horfðu til himins”. Hann varð fugla-sjúkur og hélt á tímabili að hann væri fugl sjálfur. Hilmar bað um í afmælis-, jóla, ferminga og tilefnisgjafir um fuglabækur og átti hann sjálfur páfagauk. Hilmar var orðinn það fuglafær að hann gat hermt eftir öllum fuglunum. Honum fannst fuglar það kúl að hann lét kalla sig Hilla bra. Hann stofnaði svo til fuglavinafélag sem voru í Hilmar, Jói og Jónsi. Uppáhaldsfuglarnir hans voru lundar, lundana elskaði Hilmar. Allir eyjamenn voru réttdræpir í hans augum ef þeir veiddu og myrtu lundana á ógeðslega pyntingar-fullan hátt. Hilmar var orðinn á þessu stigi friðarleiðtogi. Hilmar var bítlavinur með meiru og fékk nick name-ið Hilli bítill. Ekkert merkilegt gerðist á hans árum frá 1977 – 1988 þegar að gullfalleg systir hans fæðist. Hún fékk nafið Hafdís vegna fegurðar. Hilmar missti áhuga á fuglum og hafði meiri áhuga á því að kenna barninu að syngja með textum Metallica þegar að vinir hans voru heima en þegar að þau 2 sem enginn trúði að væri systkini vegna andstæðna hlustuðu þau saman á Grease. Hann henti henni þó í kalt bað oftar en einu sinni, læsti hana inní skáp og notaði hana sem afsökun fyrir allt sem hann gerði. Systir hans var ef má segja kúguð af sínum eldri bróðir sem ennþann daginn í dag minnist á það að hún hafi týnt hokkí körlum í glötuðu sænsku spili. Hann ætti eiginlega að borga henni þetta einhverndaginn allar þessar píningar. Hilmar var líka í fótbolta og hann náði sínu hámarki sínu þegar að hann skorði þrennu á pollamótinu í Vestmannaeyjum. Hann hætti svo í fótbolta og er núna á leiðinni að verða fótbolti. Hann dofnaði betur en flest börn og þegar hann var kominn á unglingaaldur fór hann að hlusta á Metallica og Kiss og kenndi kornungri systur sinni textana henni til mikillar ánægju og laug hann allskonar veseni að henni t.d. að hún sé með plastbak og sagði hann henni að jólasveinninn væri ekki til og sannaði það með að taka upp útí glugga alla nóttina. Hann aflitaði á sér hárið og vann við að slá gras. Rakaði af sér hárið og fór í uppreisn. Þegar hann var með hár greiddi hann það í gardínugreiðslu. Hann fór í Flensborg og var með uppnafnið Hilmar Pferd (das Pferd = hestur) og gekk verst í þýsku, svo illa að hann hætti í skóla. Hann fór að vinna hjá grjónapungi eins og Hilmar kallaði hann og var hann með augnakonfektinu Kára sem mætir á alla FH leiki í vinnu. Af Kára fara margar sögur. Hilmar hætti þó þarna þar sem hæfileikar hans voru ekki að njóta sín, hann fór í Iðnskólann og lærði raffræði hjá pabba Bjarkar honum Björgúlfi. Hilmar var mjög svo góður í þessu og fékk hann vinnu hjá pabba sínum og vinnur þar enn í dag. Til gamans má geta að Hilmar var aldursforseti í iðnskólanum þar sem hann var sá elsti til að útskrifast, betra seint en aldrei. Þegar rafvirkar verða virkilegar góðir í starfi sinu koma plömmerar fram og bumban eykst og það er það sem gerðist fyrir hann bróður minn. Hann vann þar kvölds og morgna og fannst það gaman, kallar vinnumenn með sér mellur og hórur og segir það eitthvað til um hvað hann hefur verið að gera við allt sem hann fékk útborgað á þeim tíma. Loks kynntist Hilmar stúlku að nafni Elín og eru þau kærustpar í dag. Hilmar er ástfóstri Ísaks Mána og eignuðust þau í janúar prinsinn Freyr sem er afar lekkert barn og líkist frænku sinni Hafdísi óendanelga mikið enda á hún barnið líka. Þar sem Hilmar er í dag þá gefur hann systur sinni tónleika með korn í afmælis-gjöf og best of korn plötur í jólagjöf og veit ég ekki afhverju og held ég að á hann hafi runnið korn æði. Vona ég til með að hann muni nota fjölbreytni og hafa það ekki korn næst!! Hann elskaði líka sund!


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.10.2005 20:19:24 / drhilmar

Hvað gerðist fyrir tveimur árum

Ég hef ákveðið að leyfa lesendum að fræðast um Hamborgarferð mína fyrir um 2 árum og hér kemur hún

Farið var út mjög snemma á föstudeginum og folinn byrjaði á að bjóða uppá bloody mary sem var viðbjóður þannig að til söngvatnsinns var þá strax gripið. Nokkrir bjórar voru drukknir í leifsstöð en ég ákvað að sofa bara í vélinni enda er fátt leiðinlegra að sitja í flugvél.

Eftir að hafa tékkað okkur inná hótelið var aðeins haldið niður í bæ og gerð dauðaleit af pöbb, þeir finnast illa þarna í verslunargötunni en við fundum þó einn stað sem seldi bjór og var að sjálfsögðu farið þangað inn.

Jóhann belgur kom til hamborgar um 5 leytið og var ég þá sá eini sem vakandi því hinir höfðu lagt sig aðeins. Hann hafði heyrt af st.pauli leik og fórum við að tékka hvort við fengum miða og viti menn, þeir fengust. Þar sem ég var jakkalaus ákvað ég að drekka af mér kuldann. Ekki vantaði bjórinn þarna. Reyndar héldum við að við gætum ekki keypt okkur bjór inni þannig að við tókum á eins og fyrir flensborgarböllin í gamla daga en þegar inn var komið sáum við okkur til mikillar ánægju að þar flæddi bjórinn eins og vín og veittum við nokkrum þar mjög gott heimili.

St.pauli er í þýsku 3.deildinni þannig að fótboltinn þarna var nú ekki merkilegur en aftur á móti var massastemming þarna og því var þetta fínasta skemmtun.

Eftir leik var haldið á riberbahn og drukkið á hinum ýmsustu stöðum, meðal annars jagermaster sem er viðbjóður en það voru einhverjir þýskarar sem buðu upp á það og ekki segir maður nei við þvílíku kostaboði.

Ekki þarf að taka það fram að maður varð wasted þarna eftir alla drykkjuna og svefnleysið þannig að ég beilaði frekar snemma held ég, veit reyndar ekkert hvað klukkan var en ég fór allavega fyrstur uppá hótel þar sem ég var orðinn svo dræmur.

Það var farið á fætur um hádegið á laugardagin og eftir sturtu og éting á pizza hut var haldið á fund með guðna Bergs. Hann var í góðum fíling og segir líka sagan að ég hafi komið í sjónvarpið og blessunarlega var ég með bjór í hönd þá.

Eftir fundinn var haldið á skeiðvöll rétt hjá leikvanginum sem hsv á. Þar hittust allir íslendingarnir og drukku bjór og voru með mannalæti og allir í fíling.

Það var gengið á völlinn frá skeiðvellinum með reyndar nokkrum pissustoppum því ekki vill bjórinn staldra lengi við í mallanum.

Menn ættu nú almennt að vita hvernig þessi leikur var þannig að ég nenni nú ekki að minnast of mikið á hann en þess má geta að þessi völlur þeirra er geðveikur.

Eftir leik var svo haldið íslendingaball þar sem hljómsveit Jóns Ólafssonar og Stefán Hilmarsson og þar var mesta fjör. Ég og belgurinn gengum á fallega og fræga fólkið og mynduðum mig því þannig að það voru þá alltaf 2 fallegir á myndinni en bara einn frægur þar sem ég er ekki svo frægur þó ég hafi komið í sjónvarpið fyrr um daginn.

Eftir ball var svo haldið á riberbahn og farið á einhvern írskan stað sem var vel troðinn og þar var haldið áfram í bjórnum eins og lög gera ráð fyrir. Ég tók upp á því að fara að refsa þýskum stelpum með treflinum sem ég var með. Flestar sem skildu ensku tóku nú bara létt í þetta létta flipp.

Folinn og þruman fóru svo á herberstrasse og höfðu þar ,,sexual intercorse" gegn örlítilli greiðslu. Þegar þeir höfðu lokið sér af ákváðum við þrír að brjótast inná st.pauli völlinn því hann er þarna í grennd. Við komumst inní stúkuna en ekki inná völlinn sjáfan þvi girðingin þar var ansi vígaleg. Eftir þetta fórum við inná hótel og beint í morgunmatinn og vorum við með töluverð læti þar spái ég.

Í gær var svo sem ekkert mikið gert, skelltum okkur í dýragarð og svo var bara haldið uppá flugvöll. Tékk innið tók reyndar langann tíma og það var ekkert almennilegt að borða þar.

Þegar allt er tekið inní dæmið var þetta hin fínasta ferð og ég þakka öllum mínum ferðafélugum fyrir samvistina.
Takk fyrir


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.10.2005 00:03:47 / drhilmar

öðruvísi blogg

Ég hef fengið kvartanir frá aðilum sem þess efnis að ég sé ekkert að tala um sjálfan mig, ekki vissi ég að slíkt tíðkaðist en ég reyni aðeins að bæta úr því og ætla ég að nefna nokkra hluti sem eru mjög persónulegir.

-ég horfði á bachelor í kvöld

-mér leið illa, fékk bjánahroll

-mér finnst DV hafa verið með ömurlega grein um FH í dag

-þeir hafa ekkert fyrir sér í þessu

-þetta eru bara mammútar og lómar sem eru að reyna að skemma

-ég þurfti að ljúga mig veikann í dag þó ég hafi mætt í vinnu

-svik og prettir 503 þar á ferð

-pabbi myndi kenna þennan áfanga ef hann væri til

-ég hitti dísu systir á fyllerí í bænum um síðustu helgi

-það var kjánalegt

-ég hef ritskoðarð komment sem hafa komið hingað

-sé ekki eftir neinu

-ég pantaði einu sinni pizzu á félaga minn

-hann kom til dyra og sagði með útglennandi lappir að þetta hlyti að vera misskilningur

-þetta komst allt upp

-fékk skammir

-var samt þess virði.

Takk fyrir


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.10.2005 22:04:37 / drhilmar

Hnefi á lofti

Síðastliðin föstudag var haldin mikil skemmtun á broadway þar sem raf-x starfsmenn voru, eðlilega voru menn drukknir og þar á meðal var Vésteinn Stefánsson starfsmaður raf-x.  Einhverjir fóru í bæinn og þar á meðal vésteinn og fór hann á Sólon og hlaut þar eitt stykki kjaftshögg frá Jóla vini sínum.  Ég ætla í þessum pistli að útskýra af hverju þetta átti sér stað.

Árið 2000 voru þeir Vésteinn og Jóli í bænum og sáu þar fallega snót sem heitir Kolla, með sjarmanum hans Jóla og krúttlega útlitinu hans Vésteins tókst þeim að tæla hana í Garðabæinn þar sem svokallað,,3some" átti sér stað.  Jóli varð strax yfir sig ástfanginn af Kollu og byrjuðu þau saman, Þetta gramdist Vésteini mjög og með klókindum tókst honum að stinga undan vini sínum með því að sannfæra hana um að Jóli væri bara handlangari en hann sjálfur væri fyrirmyndarrafvirki.

Jóli tók þessu ekkert sérlega illa til að byrja með, hann vildi ekki spilla þeirri góðu vináttu og hann trúði ekki öðru en að Kolla myndi sjá að sér þegar hún færi að kynnnast Vésteini betur en eins og flestir vita, að ef Vésteinn væri strumpur þá væri hann klaufastrumpur.

Kolla hins vegar sætti sig við Véstein enda vissi hún að erfitt væri fyrir hana að stunda sitt nám án þess að hafa fyrirvinnu.

Síðastliðin föstudag hittust þau 3 aftur í fyrsta skipti eftir ,,3somið".  Bölvað kvikyndið hann Vésteinn gat ekki haldið aftur að sér og fór að nudda Jóla upp úr þeim hörmungum sem hann hafði lifað.  Auðvitað hlaut að sjóða uppúr og Vésteinn hlaut að launum eitt högg á nebbann og skalla í andlitið og hljóp hann í kjölfarið grátandi heim til sín í Garðabæinn og skreið upp í til mömmu og pabba.

Nú ætti fólk að vita af hverju þetta gerðist.


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.09.2005 22:27:43 / drhilmar

Jón Rúnarsson

Árið 1983 fæddist bæði hafnfirðingum og garðbæingum sonur.  Hann heitir Jón Rúnarsson, sonur Rúnars húsasmíðameistara og Gunnhildar, starfsmanns á hrafnistu í hafnarfirði.
Jón þessi ólst upp í mikilli ást hjá foreldrum sínum sem alltaf fundu fyrir hann fötin hans og klæddu hann þegar á þurfti að halda og þau kenndu honum að sófinn er hjarta hvers heimilis og þar er gott að horfa á sjónvarpið og borða nammi og dýfa því svo á bólókaf í kokteilsósu.
Það var eitthvað við þessa kokteilsósu sem fangaði Jón svona svakalega, í hvert skipti sem hann dýfði súkkilaðinu sínu í sósuna þá þráði hann alltaf meira, hann einfaldlega gat ekki fengið nóg.
Til að reyna að halda aftur að þessari sósuhneigð hans ákvað móðir hans að prófa að flytja með hann norður til Akureyrar en í þá daga var engin kokteilsósa seld á akureyri.
Þetta voru erfiðir tímar fyrir Jón, hann ráfaði líkt og róni í leit að mat í ruslatunnum en akureyringar höfðu aldrei heyrt um þessa sósu.
Það kviknaði hins vegar vonarneisti hjá honum þegar kvikmyndin cokteil kom út árið 1989.  Jón sá auglýsingaspjöldin um myndina og nú hélt hann að það væri verið að auglýsa kokteilsósu en vonbrigðin urðu gríðarleg þegar hann uppgötvaði að þetta væri einungis kvikmynd með lóminum honum Tom Cruise.
Árið 2001 bauðst hjónunum einstakt tækifæri. Rúnari bauðst það tækifæri að byggja hús í nýju hverfi rétt fyrir utan hafnarfjörð sem kallast vellir og því miður þýddi þetta að það þurfti að flytja með drenginn í fjörðinn þar sem kokteilsósa fæst á hverju horni.
Til að reyna að halda drengum sem lengst frá sósunni ákvað mamma hans að hann skyldi ganga til liðs við skátanna en það voru hennar stóru mistök, þar hitti hann núverandi kærustu sína, Huldu hvanndal, dóttur Gylfa Hvanndal eiganda hvanndalsósu ehf sem meðal annars framleiddi kokteilsósuna góðu. Nú var ekki aftur snúið, baráttan var töpuð og nú gékk Jón með sósuna hvar sem hann var og gekk hann svo langt að koma með sósuna í kokteilboð á Bessastöðum þar sem okkar maður skálaði ekki í kokteili heldur í kokteilsósu og var honum eðlilega sparkað út og stórri hellu hent á lappinar á honum og við það missti hann tvær tær og ekki var það gaman né þægilegt.
En Jón reis upp og eftir mikla baráttu við ólaf Ragnar vann hann sakamál og því gat hann keypt sér glænýjan golf og einnig fékk hann vinnu sem pípari hjá píp-x ehf.


Þess má geta að engin persóna í þessari sögu á endilega stoð í raunveruleikanum


» 118 hafa sagt sína skoðun

03.09.2005 00:20:09 / drhilmar

Sagan um Einar, fall, upprisa,gjaldþrot

Einar var ungur maður sem ólst upp í Hafnarfirði við kjöraðstæður.  Hann fékk snemma áhuga á fermingarstelpum og hélst sá áhugi lengi lengi. Árið 2000 kynntist hann ungri stelpu í 10.bekk sem hét Hulda og var afabarn Steina Rafvirkja á Smyrlahrauninu.  Einar fékk fljótlega vinnu hjá honum Steina og unnu þeir lengi saman og fór vel á með þeim þó svo að einstaka slys hafi komið upp, eins og þegar Einar dældi díseli á bílinn hans.
Tíminn leið og Einar var orðin heldur leiður á Huldu og hættu þau saman.  Við það tækifæri ákvað Einar að kaupa sér fallega íbúð í setberginu í Hafnarfirði.  Eðlilega hélt hann innflutningspartý og mætti Hulda þangað ásamt vinkonum sínum. Einar hafði komið fyrir myndavél inn á baðherbinu og sá hann þvú Huldu sleppa einum risastórum í plasmatækinu sínu.  Minningarnar streymdu um hann og honum langaði að taka upp þráðinn með henni.  Hulda var þá nýhætt Geir Davíðssyni og var því tilbúin til að byrja með Einari sínum aftur.
Einar var blindaður af ást, Hulda var orðin hans aftur og til að játa ást sína til fullnustu bauð hann henni að verða meðeigandi að fallegu íbúðinni hans, lífið gat vart verið betra.
Lífið gat varla orðið betra hélt Einar en það átti svo aldeilis eftir að breytast.  Einar ákvað einn dimman októbermorgun að segja upp vinnunni hjá Steina vegna deilna um þrepabor. Einar hóf störf hjá öðrum rafverktaka og sárnaði Steina það mikið.  Steini talaði við Huldu og bað hana um að fara frá Einari. Hulda var treg til en eftir tæpt ár af röfli frá afa sínum sagði hún Einari að hann gæti átt sig og nýja bílinn sinn og snáfaði heim til mömmu sinnar um leið og vaxtabætur höfðu verið greiddar.
Lítið vissi Einar nema að nú væri allt búið á milli þeirra en svo var nú aldeilis ekki.  Ekki vildi Hulda meira af Einari heldur nú girnist hún það sem Einar átti og meðvituð að hún væri meðeigandi fékk hún sér endurskoðanda sem krafðist hárra fjárhæða.
Einar átti eðlilega ekki þessa fjárhæð þannig að manngreyið þurfti að endurfjármagna til að geta borgað Huldu og þannig lauk þessari fallegu sögu á milli þeirra og nú er Einar einhleypur en á stórt plasmatæki og nóg af remmurum og er bitur maður með stórt lán á bakinu.
Sögulok

» 101 hafa sagt sína skoðun

30.08.2005 21:02:26 / drhilmar

Skýringin komin

Hvað á maður að halda um mann sem lætur mömmu sína heita mamma dúlla í símaskránni í símanum sínum, kallar tengdarpabba sinn krútt, hefur mynd af lítilli sætri kisu á msn-inu sínu, vælir þegar einhver ropar og vorkennir sér mikið í hvert skipti sem þarf að vinna meira og segir svona ææji eins og kona þegar hann vorkennir sér?

Flestir myndu halda að þarna væri samkynhneigður maður á ferð og vissulega höfum við oft haldið það.  Þessi maður er reyndar í sambúð með henni Kollu sinni sem hann kynntist blindfullur í eyjum.  Hins vegar komst ég að því nýlega að hann á bróður sem kýs frekar kynlíf með karlmönnum og var það mikið sjokk að heyra.

Í fyrsta lagi er það mjög slæmt að heyra svona lagað frá einhverjum þriðja aðila, eðlilega átti hann að vera heiðarlegur og útskýra það fyrir vinnufélögum sínum að hann ætti bróður sem væri samkynhneigður, rétt eins og ég sagði öllum fúslega frá því þegar ég lenti í veseni með fíatinn minn.

Þetta sýnir vissulega að hann er með þetta gay element í sér, þetta mun vera hálfbróðir hans sem sýnir þá að hann sé réttilega hálfgay og þá sjáum við hvers vegna hann hefur látið mömmu sína heita dúllu í símanum sínum og fleira.

Það er svo fleira skemmtilegt að segja af honum Vésteini. Eitt sinn ætlaði pabbi hans að kæra hann fyrir að spenna upp fíngerðan vínskáp með látum til að komast í eina vískiflösku en það var þess virði þó segir vésenið.

Meira var það ekki að sinni.


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.08.2005 22:04:38 / drhilmar

Arnar Dór

Nú ætla ég að gera smá úttekt á Arnari Dór Vinnufélaga mínum

-Hann svindlaði í idol

-Fór í viðtal sama dag og hann átti að keppa

-Hann átti að vita betur

-Kærastan hans hefur sýnt öllum sem vilja á sér píkuna

-gæti unnið betur undir pressu

-Hann er Keflvíkingur

-klippti innvols úr hjálmi þegar eftirlitsmaður mætti á svæðið á gömlum vinnustað

-hann er með stærri haus er flestir

-ekki standard stærð

-Hann lét nafna sinn hafa af sér fúlgu fjár

-hneisa að hafa ekki buffað hann

-Patrick Sweise er hans uppáhaldsatónlistarmaður

-Hann má reyndar eiga það að hann syngur eins og engill

-leggur dyrasíma í 20 mm röri

-það er gay

-gleymir oft rörum í plötum

-dró rafmagn í vatnsrör í dag

-hvernig honum tókst það skilja fáir

-hann ætlar að taka þátt í reykjarvíkurmaraþoni

-hann mun samt eflaust svindla

-vonandi fer hann fínna í þetta núna

Þetta er allt sem ég hef að segja um Arnar Dór að sinni, kem svo með ævisögu hans næst þegar hann á afmæli.


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.07.2005 11:43:46 / drhilmar

Sendur til Sýsló

Góðann daginn kæru skítakögglar.  Það er kominn tími á að segja fallega og skemmtilega sögu sem gerðist á Lækjargötunni en teygði þó anga sína alla leið upp á Bæjarhraun í Hafnarfirði þar sem sýslumaðurinn er til húsa.

Allt byrjaði þetta síðasta þriðjudag þegar mér datt í hug að hella örlítilli steypu í töskuna hjá einum vinnufélaga mínum sem heitir Vésteinn Stefánsson, sonur Stefáns stærðifræðikennar og Marsibils aðstoðarskólaskóla í Hvaleyrarskóla.  Vésteinn tók ekki vel í það að fá steypu ofan í verkfæratöskuna sína og í bræði sinni reyndi hann meðal annars að rífa af mér hamar sem ég hélt á en ég gaf mig ekki sem betur fer því annars hefði hann væntanlega látið hann vaða í mig.  Hins vegar tókst honum að skvetta á mig vatni í lok dags og leit ég á sem hann hefði borgað rúmlega fyrir sig og því þurfti að borga smá til baka.

Ég hafði samband við Hafdísi systur mína og bað hana að hringja í Vésteins og símanúmerinu í Hress og þykjast vera frá sýslumanninum í hafnarfirði.  Hún bað hann um að koma sem fyrst til þess að skrifa undir lögregluskýrslur vegna atviks í Kópavogi þegar hann velti bíl ásamt tengdarmóður sinni.  Vésteinn kokgleypti þetta og brunaði upp á Bæjarhraun en þar voru engar skýrslur til að skrifa undir enda hafði þetta gerst í Kópavogi.  Konunar hjá sýsló hlógu dátt af hinum seinheppna og sögðu hann væri væntanlega fórnarlamb á ákaflega vel heppnuðum hrekk.

Þetta kennir mönnum að vera ekki að abbast upp á mig, ef hann ætlar að gera eitthvað meira þá geri ég eins og Cartman gerði við Scott Tenorman í þætti númer 501, menn verða bara að sjá þann þátt til að vita hvað það er, en Vésenið hefur verið aðvaraður.

Takk fyrir


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.07.2005 18:26:58 / drhilmar

Volvo Veltur

Þá er það staðfest að hægt að velta því sem menn kalla sænska stálið.  Einn ónefndu vinnufélagi hafði afnot af einum slíkum en pabbi hans átti þó bílinn og borgaði nær allt sem þurfti eins og til dæmis Bensín, viðhald, hreinsun á sætum eftir að okkar maður hafði verið að hugsa of mikið um tengdó og svo allt annað borgaði og vistaði svo allar greiðslur samviskusamlega inn í excel skjal.

Þessi ónefndi maður ákvað eitt kvöldið að bregða sér á Volvóinum á púbb og fá sér nokkra kalda.  Eitthvað varð nú gleðskapurinn meiri en til stóð þar sem tengdarmamma hans var á svæðinu og því ákvað hann að herða drykkjuna allnokkuð til þess að ganga enn frekar í augun á henni.  Það tókst bara allvel og endaði þetta með því að hún samþykkti að fara á rúntinn með honum en hann tók þó fram að hann ætlaði sér að stoppa á Kentucky í Kópavoginum til að sefa hungrið. 

Með Zinger í hendi, sauðdrukkinn og enn að kafna í fiskifýlu þá dundu ósköpin yfir, sá óheppni velti bílnum og gjöreyðilagði hann.  Lögreglan mætti á svæðið og hantók okkar mann og tengdó einnig og lét þau gista fangageymslur en þó ekki í sama klefa og það sárnaði honum mikið.

Í dag bíður hann dóms og verður væntalega sviptur ökuleyfi líka en væntanlega mun nú tengdó eða pabbi borga sektina.


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2